FAGLEGUR OG SKAPANDI SKÓLAFUNDUR
SKÓLAFUNDUR var haldinn í FSu síðastliðinn föstudag 17. apríl. En eins og segir í framhaldsskólalögum frá árinu 2008 - skal halda skólafund að minnsta kosti einu sinni á hverju skólaári. Rétt til setu eiga allir starfsmenn skólans ásamt fulltrúum nemenda. Á fundinum er rætt um málefni viðkomandi skóla. Skólameistari boðar til fundarins og leggur fram dagskrá - stýrir fundi eða felur öðrum stjórn hans.
Umfjöllunarefni skólafundanna eru ólík á milli ára. Að þessu sinni var athyglinni beint að markmiðum ríkisstjórnar Íslands í mennta- og mannauðsmálum og hvernig hægt sé að tengja þau daglegu skólastarfi. Umræðan fór fram í hópum undir faglegri og röggsamri stjórn sviðstjóranna Guðbjargar Helgu Guðmundsdóttur og Guðfinnu Gunnarsdóttur.
Hugtökin sem unnið var með voru þrjú. Góð þjónusta. Gæði menntunar. Öflugur mannauður. Umræður voru líflegar en ávallt innan ramma skipulagðrar kennslufræði þar sem öllu er afmarkaður tími. Svör og vangaveltur settar á gula límmíða sem festir voru á veggspjald. Dæmi um spurningar sem unnið var með má nefna: Í hverju felst gæði menntunar og hvernig tryggjum við hana? Hvað er góð þjónusta í skólaumhverfi FSu? Vantar þjónustu í FSu? Hvað mætti bæta? Hvað felur öflugur mannauður í sér sér? Hvernig eflum við velferð, námsánægju og starfsgleði nemenda og starfsfólks?
Við lok fundarins fór fram hugstormun um framtíðarsýn FSu þar sem meðal annars var spurt um þau gildi sem ættu alltaf að einkenna skólastarf í FSu? Hvaða sérstöðu hefur FSu í menntun nemenda sinna? Er e-ð sem skólinn ætti að hætta að gera í starfsemi sinni? Og að síðustu: Þegar fyrrverandi nemandi skólans lítur til baka eftir þrjátíu ár – hvað hefur skólastarfið gefið honum?
jöz







