Fáðu já!

Stuttmyndin Fáðu Já, mynd um mörkin milli ofbeldis og kynlífs var sýnd í skólanum í gær í 2. tíma. Kennarar sýndu myndina í kennslustund og stýrðu umræðum um hana.  Nemendur virtust almennt vera ánægðir með myndina og sköpuðust víða líflegar umræður um efni hennar.

Myndin er gerð vegna vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum og er styrkt af Velferðar-, Innanríkis- og Mennta- og menningarmálaráðuneyti.