Erasmus verkefni undirbúið

Myndin er tekin í þjóðgarðinum Font Roja á Spáni. Talið frá vinstri: Luis, Carolina, Ronald kennari …
Myndin er tekin í þjóðgarðinum Font Roja á Spáni. Talið frá vinstri: Luis, Carolina, Ronald kennari við FSu, Andrea, Jan, Nicolas og Charles. Á myndina vantar Idu, dönskukennara við FSu.

Öll stór verkefni þurfa góðan undirbúning og á það einnig við um eitt af þeim þremur Erasmus+ verkefnum sem FSu fékk samþykkt nýverið. Dagana 14.-16. október hittust í fyrsta sinn kennarar frá löndunum fjórum sem taka munu þátt í samstarfsverkefni, en þáttur okkar FSu snýr að vistvænni ferðamennsku. Luis og Carolina, heimamenn og gestgjafar í Alcoi, Spáni sem skipulögðu rammann utan um fundarhöldin og sýndu hópnum náttúru og menningu á svæðinu. Bæði tvö eru góðkunningjar skólans frá skólaheimsókn starfsmanna FSu til Alcoi vorið 2017. Hin tvö aðildarlöndin eru Slóvakía og Frakkland.

Jan Kopcak frá Slóvakíu, stjórnandi verkefnisins sá um dagskrárliði fundanna. Á þessum dögum fékk hópurinn tækifæri til að kynnast, fara yfir tæknileg atriði og gera áætlanir. Bæði hádegismatur og kvöldmatur á Spáni getur tekið margar klukkustundir og myndaðist þá óformlegur vettvangur frekari samræðna um verkefnið og samstarfið.

Næsti fundur verður í lok janúar, en þá verður farið í fyrstu ferðina með nemendur til Slóvakíu.