EKKO VERKEFNI FSu HLÝTUR HVATNINGARVERÐLAUN
Við FSu starfar sérlega samhent og öflugt teymi nemendaráðgjafa sem fyrir tveimur árum hrundu af stað forvarnarverkefninu EKKO sem er skammstöfun fyrir einelti, kynbundna og kynferðislega áreitni eða ofbeldi. Þar er áhersla lögð á að vakni grunur um samfélagsmein af þessu tagi sé gripið tafarlaust til viðeigandi aðgerða með skýrum verklagsreglum þar sem nemendur viti hvar tilkynna beri um slík mál.
Síðastliðinn föstudag 6. nóvember var Dagur gegn einelti haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla í Reykjavík þar sem EKKÓ teymi FSu hlaut hvatningarverðlaun Fagráðs gegn einelti – sem veitt eru í tilefni alþjóðlegs dags gegn einelti. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að
EKKO-teymi Fjölbrautaskóla Suðurlands „hafi sýnt metnaðarfullt og faglegt frumkvæði í uppbyggingu markvissra forvarna gegn einelti, áreitni og ofbeldi og unnið að því að skapa skýra verkferla, efla þekkingu starfsfólks og tryggja nemendum aðgengilegar leiðir til að leita aðstoðar og stuðnings.” Enn fremur er því veit eftirtekt hvernig tekist hefur að virkja nemendur og starfsfólk til þátttöku og ábyrgðar á jákvæðum samskiptum í öruggu skólaumhverfi. Að því leyti „hefur EKKO teymi FSu lagt mikilvægan grunn að öflugri forvarnarmenningu og þróað verklag og fræðsluefni sem er öðrum skólum fyrirmynd.”
Dagskráin í Hlíðaskóla var í senn hátíðleg og sérlega ánægjuleg með ávarpi forseta Íslands frú Höllu Tómasdóttur og nöfnu hennar Höllu Drafnar Jónsdóttur félagsráðgjafa FSu sem veitti verðlaununum viðtöku ásamt námsráðgjöfunum Önnu Fríðu Bjarnadóttur, Agnesi Ósk Snorradóttur og Bjarneyju Sif Ægisdóttur. Með orðum skólameistara Soffíu Sveinsdóttur í tilefni þessarar viðurkenningar er stolt og gleði starfsmanna FSu mikil og því til viðbótar er ekki úr vegi að vitna til ræðu Höllu Drafnar Jónsdóttur þegar hún lýsir því yfir hvað það skipti miklu máli að ALLIR leggja sitt af mörkum:
„Nemendur, listgreinakennarinn, íslenskukennarinn, smíðakennarinn, íþróttakennarinn svo nokkrir séu nefndir. Þá verður þetta sameiginlegt verkefni alls skólans en ekki bara EKKO teymisins og Evu kynjafræðikennara sem vinnur svo mikilvægt starf þessu tengt í hverri viku. Og fyrst ég nefndi smíðakennarann þá hefur reynt töluvert á hann síðustu daga. Hann sagaði út risastórt FSu hjarta sem núna prýðir miðrými skólans, skreytt jákvæðum skilaboðum frá nemendum. Og vildi ég óska þess að við hefðum getað tekið hjartað með okkur hingað í dag. En eins og okkur var bent á að þá tökum við að sjálfsögðu ekki hjartað úr skólanum okkar. Takk fyrir þessa viðurkenningu. Hún er okkur mikil hvatning til að halda áfram að læra og gera betur.”
hdj / ss / jöz







