Einelti kannað

Miðvikudaginn 25. nóvember var ein kennslustund tekin undir eineltiskönnun í skólanum. Í stað þess að mæta í tíma samkvæmt stundaskrá hittu nemendur umsjónarkennara sína vopnaðir tölvum og svöruðu könnuninni. Allt gekk snurðulaust og nemendur tóku þessari truflum með jafnaðargeði. Stendur nú upp á hinn mikla Olweus að lesa úr gögnunum.