Byko og foreldrafélagið gefa

Fimmtudaginn 3. febrúar 2011 afhenti Pálmi Jóhannsson frá Byko Foreldrafélagi FSu gjöf frá fyrirtækinu. Voru það tveir örbylgjuofnar og eitt samlokugrill. Dagný Magnúsdóttir formaður foreldrafélagsins afhenti síðan skólanum gjöfina. Örbylgjuofnarnir og grillið verða nemendum til
afnota og verða staðsett við græna vegginn í nemendamötuneytinu. Á myndinni sjást Sölvi Þór Hannesson formaður NFSu og Örlygur skólameistari taka við gjöfinni frá Pálma og Dagnýju.