Busun

Hin árlega busun fór fram fimmtudaginn 27. ágúst. Fyrst var öllum nýnemum smalað í sal skólans þar sem formaður nemendaráðs kynnti busum ýmsar hegðunarreglur innan skólans. Að því loknu tóku böðlar völdin og leiddu nýnemana út á íþróttasvæði þar sem ýmsar þrautir biðu þeirra. Þegar busarnir höfðu lokið verkefnum sínum var öllum boðið í pylsuveislu.