BRI172 brá sér í bæinn

Fimmtudaginn 26. mars fóru nemendur úr  BRI172 með kennara sínum í heimsókn í höfuðstöðvar Bridgesambands Íslands ásamt  nemendum úr Menntaskóla Kópavogs.  Þar  var sett upp létt keppni undir öruggri stjórn keppnisstjóra sambandsins, Sveins Rúnars Eiríkssonar. Frekar fóru höfuðborgarbörnin halloka fyrir þeim sunnlensku og urðu þau Herdís Rútsdóttir og Eiríkur Vilhelm Sigurðsson í fyrsta sæti og þær Fanney Björk Ólafsdóttir og Klara Sif Ásmundsdóttir í því þriðja.