Bikarinn í hús

Þann  25. nóvember  var seinni einvígisleikur ársins milli Hyskis Höskuldar og Tapsárra Flóamanna (bridgesveitar starfsmanna FSu)  spilaður í Sumarhöllinni í Kiðjabergi.   Leikurinn endaði  95 – 73 fyrir Flóamenn.  Fyrri leikur ársins fór 68-66 fyrir Flóamenn þannig að bridgesveit FSu hefur verið sigursæl þetta ár.


stada25.11.2012Eftir 48 leiki  og  24 ár er staðan í einvígi þessara fornu "fjenda" þannig að Tapsárir Flóamenn hafa skorað 3953 impa en Hyskið 3955.  Vinningsstig standa 711 fyrir Flóamenn á móti 710 hjá Hyskinu.  Flóamenn hafa unnið 25 leiki en Hyskið 23 en Hyski Höskuldar hefur unnið bikarinn 13 sinnum en Tapsárir  11 sinnum.   Leitun er að jafnari keppni milli tveggja liða og langt frá því útkljáð hvort liðið telst betra, enda líklega orðið aukaatriði í dag, keppnin skiptir meira máli en útkoman.  Þess er þó að geta að nokkrir úr liði Flóamanna höfðu á orði morguninn eftir keppni að dagurinn væri sérstaklega fallegur en ekki heyrðust slíkar yfirlýsingar af vörum Hyskisins,  frekar umlað eitthvað um æfingarleysi og vísitöluhækkun heildarhamingju.