Beint í Fjölbraut

Útskriftarárgangurinn úr leikskólanum Álfheimum (börn fædd 2003) kom í FSu miðvikudaginn 1. apríl og föstudaginn 3. apríl. Börnin skoðuðu allar þrjár byggingar Fjölbrautaskólans og það sem þar fer fram á skólatíma. Höfðu allir gagn og gaman af og sumir útskriftarnemanna voru á þeirri skoðun að sleppa grunnskóla og koma beint í Fjölbraut.