Bangsímon í fleirtölu í heimsókn

Skólinn fylltist af dansandi böngsum, nánar tiltekið Bangsímon böngsum föstudaginn 4. desember. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á haustönn. Bangsarnir stigu dans og sungu fyrir nemendur og starfsfólk. Því næst gæddu þeir sér á kjötsúpu með starfsfólki og héldu svo út í óvissuferð. dimmh15 2Nú er próflestur tekinn við, en um 110 nemendur hyggjast brautskrást úr námi við skólann. Brautskráning hausannar fer fram laugardaginn 19. desember og hefst kl. 14. Myndirnar tók Örn Óskarsson, en fleiri myndir frá honum og fréttastjóra má finna á fésbókarsíðu skólans.