Ástráður í FSu

Að undanförnu hafa læknanemar haft viðdvöl í FSu. Hér eru á ferð erindrekar frá Ástráði, forvarnastarfi læknanema. Nokkur hefð er fyrir slíkum heimsóknum í Lífsleikni hér í skólanum, enda fagmenn á ferð og ekki vanþörf á að fræða fólk um forvarnir á kynlífssviðinu. Þeim sem vilja kynna sér starfsemi Ástráðs er bent á heimasíðu félagsins, astradur.is, en þar er ýmsan hagnýtan fróðleik að finna.