Allir vel greiddir?

Í liðinni viku fór jólaglaðningurinn úr Fjölbraut í póstinn. Þar eru á ferðinni greiðsluseðlar til nemenda á næstu önn. Hér er mynd af því þegar verið er að setja greiðsluseðla vegna innritunargjalda og annarra nemendagjalda í umslög. Vonandi sjá allir sér fært að greiða sem fyrst svo þeir fái skólavist og geti hafið nám á vorönn eins og um var sótt.