ÁFRAM MANÚELA MAGGÝ
SÖNGKEPPNI framhaldsskólanna verður haldinn laugardaginn 11. apríl í Háskólabíó og fer keppnin fram í beinni útsendingu á RÚV. Hún hefur verið haldin allar götur síðan 1990 og margir af þekktum söngvurum Íslands í gegnum tíðina hafa tekið þátt í þessari mikilvægu keppni. Má þar nefna Emelíönu Torrini, Eyþór Inga, Glowie og Elínu Hall svo einhver nöfn séu nefnd. Síðast vann FSu árið 2022 með frábæru framlagi Emelíu Hugrúnar þegar hún söng lagið I´d Rather go Blind eftir Nashville söngskáldið Ettu James (1938 – 2012).
Í ár er framlag FSu flutt og túlkað af heiðursnemandanum Manúelu Maggý sem sigraði í söngkeppni FSu með Sálarlaginu Ekkert breytir því þar sem meðal annars segir í texta: Ef ég ætti fleiri stundir / fleiri mínútur / fleiri orð / fleiri nætur / fyrir þig.
NÚ er okkar að óska Manúelu alls hins besta og kjósa hana með símanúmerinu 9009122.
jöz.







