ÁFANGAMESSAN OG VALDAGUR
Áfangamessa er fastur liður í starfsemi FSu. Þá setja kennarar skólans upp skreytta bása eða kynningarborð á sal skólans og nemendur kynna sér fjölbreytt námsframboð. Á þessari önn varð sá dagur MIÐVIKUDAGURINN 4. MARS. Valdagur fylgir svo í kjölfarið og verður 11. MARS næstkomandi en þá velja nemendur áfanga fyrir komandi haustönn.
Iðn- og starfsnámsbrautir eru sex við skólann. Í hársnyrtiiðn, matvæla- og ferðagreinum, húsasmíði, rafvirkjun, vélvirkjun og á sjúkraliðabraut. Stúdentsbrautir til bóknáms eru sex. Í alþjóðasamskiptum, félagsgreinum, náttúrufræðigreinum, íþróttum, viðskipta- og hagfræðigreinum og á svokallaðri opinni línu. Stúdentsbrautir til starfsnáms eru þrjár. Í búfræði, hestamennsku og listgreinum. Þá er rekin sérnámsbraut þar sem einstaklingsmiðað nám fer fram fyrir fatlaða og nemendur með greiningar. Garðyrkjunám sem stundað var við Landbúnaðarháskóla Íslands hefur nú flust til FSu og er hægt að stunda það á sex brautum.
Ljósmyndirnar með þessari umfjöllun tók Guðfinna Gunnarsdóttir sviðstjóri og enskukennari og markaðist að því að ná myndum af kynningarborðum einstakra deilda.
jöz /gg







