75 brautskráðir

Brautskráning fór fram í FSu laugardaginn 17. desember. Alls útskrifaði skólinn 75 nemendur að þessu sinni, þar af 50 stúdenta. Flestir brautskráðust af félagsfræðibraut eða 20 nemendur, 11 nemendur brautskráðust af náttúrufræðibraut, 4 af málabraut, 6 af viðskipta- og hagfræðibraut og 9 luku viðbótarnámi við stúdentspróf að loknu starfsnámi. Fimm nemendur brautskráðust af tveimur brautum.