Íslenskubrú
Lýsing
Íslenskubrú er 120 eininga námsbraut á fyrsta og öðru hæfniþrepi. Námið er fyrir nemendur af erlendum uppruna sem litla sem enga kunnáttu hafa í íslensku við upphaf náms. Nemendur með annað móðurmál en íslensku hafa ólíkan bakgrunn hvað varðar nám, menningu og tungumál. Markmið náms á íslenskubrú er að þjálfa nemendur í íslensku máli, sem og menningarfærni, og stuðla að félagslegri vellíðan nemandans. Markmiðin fela í sér að nýja tungumálið sé lykill að íslensku samfélagi, frekari menntun og skólastarfi, atvinnuumhverfi og brúi ólíka menningarheima.
Inntökuskilyrði
Námsbrautin er opin þeim nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku eða að hafa alist upp erlendis. Brautin er einkum ætluð 16 - 20 ára nemendum.
Námið
Íslenskubrú er námsleið sem skipt er á fjórar annir þar sem áherslan er á fjölbreytta kennslu, einkum í íslensku. Með námi á brautinni er nemendum gert kleift að auka möguleika sína til frekara náms og/eða starfa í íslensku samfélagi.
Annarplan
| Greinar | 1. önn | 2. önn | 3. önn | 4. önn |
| enska | ENSK (5 ein) | ENSK (5 ein) | ||
| íslenska bókleg | ÍSAN1GA05 | ÍSAN1GB05 | ÍSAN2ÍA05 | ÍSAN2ÍB05 |
| íslenska tal | ÍSAN1AA05 | ÍSAN1BB05 | ÍSAN2CC05 | ÍSAN2DD05 |
| námstækni / heimanámsstuðningur | NÁSS1GA05 | NÁSS1GB05 | ||
| íþróttir/hreyfing | ÍÞRÓ (2 ein) | ÍÞRÓ (2 ein) | ||
| lífsleikni | ERGÓ1AZ03 | ERGÓ1BZ03 | ||
| skólabragur | BRAG1SA01 | BRAG1SB01 | ||
| stærðfræði | STÆR (5 ein) | STÆR (5 ein) | STÆR (5 ein) | |
| upplýsingatækni | TÖLN1GR05 | |||
| frjálst val | 6 einingar | 6 einingar | 7 einingar | 7 einingar |
| einingar samtals | 30 einingar | 30 einingar | 30 einingar | 30 einingar |







