Ráðgjöf
Nemendur skólans hafa aðgang að náms- og starfsráðgjöfum, skólafélagsráðgjafa og hjúkrunarfræðing hér innan skólans.
Náms- og starfsráðgjafar veita ráðgjöf og leiðbeina um allt sem viðkemur náminu, t.d. náms- og starfsvali. Skólafélagsráðgjafi er til taks fyrir öll sem stunda nám við skólann og glíma við ýmiskonar persónulegar áskoranir eða vilja efla sjálfstraust og vinna með styrkleika sína. Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og fræðslu til nemenda, t.d. varðandi forvarnir, kynheilbrigði, veikindi og líðan.
Enginn vandi er of lítill eða stór. Við erum hér fyrir þig.
Áfangastjóri sér um skipulag á áföngum og býr til stundatöflu, auk þess sem hann aðstoðar nemendur með val. Áfangastjóri er nemendum til leiðbeiningar um námsferilinn í gegnum námið, hvaða áfanga þarf að taka og í hvaða röð. Tölvuþjónustan aðstoðar við flest sem tengist tölvukerfinu og getur hjálpað við að tengja tölvur við netkerfi skólans auk þess að aðstoða við smávægileg vandamál sem geta komið upp í tölvum starfsfólks og nemenda.
Skrifstofan aðstoðar síðan nemendur við margvísleg vandamál sem geta komið upp í lífi og starfi.







