ÞÝSK1CC05
Titill |
Grunnáfangi C |
Námsgrein | Þýska |
Viðfangsefni | |
Skammstöfun | ÞÝSK1CC05 |
Staða | |
Þrep | 1 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing |
Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa. Orðaforðinn er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar: Fatnaður og fatakaup, persónuleiki og útlit fólks, að lýsa herbergi sínu eða híbýlum, nám og störf, stutt kynning á skólakerfi viðkomandi landa, nám erlendis og að sækja um vinnu. Aðrir efnisþættir geta verið hátíðir og viðburðir, að semja boðskort og svara slíku, senda sms og tölvupóst, svo og fjölmiðlar, þ.e. kynning á útvarpi, sjónvarpi, dagblöðum og tímaritum viðkomandi landa. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á þýsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun. |
Forkröfur | ÞÝSK1BB05 |
Þekkingarviðmið | Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
|
Leikniviðmið | Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
|
Hæfniviðmið | Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
|
Námsmat | Fjölbreytt námsmat er í öllum fjórum færniþáttum tungumálsins, þ.e. tali, hlustun, lestri og ritun. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | Áfanginn er á stigi A2 skv. evrópska tungumálarammanum. |