STÆR3FD05

Titill

Föll og deildun

Námsgrein Stærðfræði
Viðfangsefni Algengustu föll, deildun þeirra og helstu eiginleikar
Skammstöfun STÆR3FD05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Meginefni áfangans eru föll, markgildi og deildareikningur.

Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru:

Föll: Veldisföll, vísisföll, lograföll, andhverf föll, samskeytt föll, eintæk, átæk og gagntæk föll.

Markgildi og deildun: Markgildishugtakið, skilgreining á afleiðu falls, deildun veldisfalla, vísisfalla, lografalla og hornafalla. Einnig er farið í reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla, samfeldni og deildanleika falla og aðfellur, hagnýtingu deildunar við könnun falla, s.s. að finna staðbundin hágildi og lággildi, einhallabil, beygjuskil og jöfnu snertils svo og gröf falla. 

Forkröfur STÆR2AF05  (STÆR2HV05 æskilegt)
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 
raunföllum, markgildum og deildun
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna með vísis- og lograföll með mismunandi grunntölum
  • finna andhverfur falla og að skeyta saman föll
  • nota markgildi og skilgreiningu á afleiðu falls
  • deilda veldisföll, vísisföll, lograföll og hornaföll og nota reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla
  • nota deildareikning við könnun falla, einkum að finna staðbundin útgildi, einhallabil, beygjuskil, jöfnu snertils
  • finna aðfellur og að teikna gröf falla og kanna samfeldni og deildanleika falla
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • velja þær aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim
  • réttskrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum
  • fylgja og skilja röksemdafærslu í mæltu máli og í texta
Námsmat Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd