STÆR2VF05

Titill

Viðskipti og föll

Námsgrein Stærðfræði
Viðfangsefni Viðskipti og föll
Skammstöfun STÆR2VF05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Unnið er með fjármálalæsi s.s. vexti, vaxtavexti, vísitölur, verðbólgu, laun og skatta. Farið verður í algebru og föll, hnitakerfið, jöfnu beinnar línu, svo og veldi og rætur. Nemendur kynnast fallahugtakinu. Unnið er með mengi og mengjarithátt og annars stigs jöfnur og ójöfnur í tengslum við daglegt líf. Margliður af hærra stigi kynntar.

Forkröfur STÆR2AR05/STÆR2RU05
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
  • persónulegum fjármálum
  • velda- og rótarreglum
  • algengum reiknireglum og algebrubrotum
  • fyrsta og annars stigs jöfnum og ójöfnum
  • hnitareikningi m.a. jöfnu beinnar línu og fleygboga
Leikniviðmið Nemandi geti unnið af öryggi og sjálfstæði með:
  • fjármálatengd hugtök og reikniaðgerðir
  • táknmál – stærðfræðilega framsetningu viðkomandi námsefnis og túlkun táknmáls á mæltu máli
  • rauntölur, algengar reiknireglur og beitingu veldareglna
  • meðferð algebrubrota og lausn annars stigs jafna
  • hnitakerfið og tengsl falla við gröf
  • stærðfræðiforrit og vísindalegar reiknivélar
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér og til dæmis:
  • miðlað henni í mæltu og rituðu máli og geta skráð lausnir skipulega
  • beitt skipulegum aðferðum og skapandi hugsun við lausnir
  • klætt verkefni í stærðfræðilegan búning, leyst þau og túlkað lausnirnar
  • hagnýtt stærðfræðilega þekkingu t.d. til að taka fjárhagslegar ákvarðanir
Námsmat Námsmat byggist á stöðuprófum, skilaverkefnum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd