STÆR2HV05

Titill

Hornaföll,  vigrar og keilusnið

Námsgrein Stærðfræði
Viðfangsefni Hornaföll,  vigrar og keilusnið
Skammstöfun STÆR2HV05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Meginviðfangsefni áfangans eru hornaföll, vigrar og keilusnið. Áhersla er lögð á sannanir, skýra og rétta stærðfræðilega framsetningu. Unnið er með eftirfarandi efnisþætti: Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi, hornafallareglur, almenna skilgreiningu hornafalla, umritanir á hornaföllum, hornafallajöfnur og ójöfnur, gröf hornafalla, bogamál. Aðrir efnisþættir eru vigrar í sléttum fleti, samlagning, lengd, samsíða og hornréttir vigrar, hnit, innfeldi, horn milli vigra, miðpunktur striks svo og keilusnið: Hringir, sporbaugar, fleygbogar og breiðbogar.
Forkröfur STÆR2AF05
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Hornaföllum, vigrum og keilusniðum, s.s. að framan greinir.
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • finna lengdir og horn í þríhyrningum og flatarmál þeirra
  • einfalda og umrita stæður sem innihalda hornaföll og leysa hornafallajöfnur og ójöfnur hornafalla
  • finna lotu, útslag og hliðrun hornafalla og teikna gröf þeirra eða lesa úr gröfum
  • breyta gráðum í bogamál og öfugt
  • beita helstu reiknireglum vigurreiknings, t.d. að finna hnit vigra, lengd þeirra, innfeldi tveggja vigra og horn milli vigra
  • finna miðju og radíus hrings út frá jöfnu hans, eða öfugt, m.a. með því að fylla í ferninginn og vinna á samsvarandi hátt með jöfnur sporbauga og breiðboga
  • sanna einfaldar reglur
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta valið þær aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt
  • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum
  • geta fylgt og skilið röksemdafærslu í mæltu máli og í texta
  • leysa margvísleg viðfangsefni í öðrum námsgreinum og daglegu lífi
Námsmat Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd