SPÆN1CC05

Titill

Grunnáfangi C

Námsgrein Spænska
Viðfangsefni  
Skammstöfun SPÆN1CC05
Staða  
Þrep 1
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa. Orðaforðinn er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð.

Til að æfa þessi atriði geta eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar:

Fólk, þ.e. líf þess og athafnir í fortíð, líkaminn, heilsa og lifnaðarhættir og að tala um framtíðaráætlanir.

Áhersla verður lögð á að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli, og einnig verður lögð áhersla á fjölbreytta og skapandi verkefnavinnu þar sem tekið er tillit til áhuga nemenda eins mikið og unnt er. Unnið verður með fjölbreytt efni, meðal annars tónlist, myndbönd, leiki og ýmislegt efni af Netinu sem hjálpar við að komast nær spænskumælandi menningarheimi og eflir menningarlæsi nemenda. Áhersla er lögð á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.

Forkröfur SPÆN1BB05
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
  • grundvallarþáttum málkerfisins
  • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
  • lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
  • beita orðaforða á skýran hátt hvað varðar málvenjur, framburð, áherslur og hljómfall
  • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
  • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi sínu
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr kunnuglegu efni
  • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í náminu
  • tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum um kunnugleg efni og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • takast á við margvíslegar aðstæður í almennum samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • miðla eigin þekkingu, skoðunum, tilfinningum sem og persónulegri reynslu
  • útskýra og rökstyðja ákvarðanir og fyrirætlanir
  • miðla efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á
  • skrifa um atburði, ímyndaða og raunverulega
  • skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd eða blaðagrein.
Námsmat

Fjölbreytilegt námsmat.

Allir fjórir færniþættir tungumálsins eru metnir, þ.e. tal, ritun, hlustun og lestur.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd Áfanginn er á stigi A2 skv. evrópska tungumálarammanum.