SÁLF3ÞS05

Titill

Þroskasálfræði

Námsgrein Sálfræði
Viðfangsefni Fjallað um þroskaferil barna og unglinga
Skammstöfun SÁLF3ÞS05
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Lýsing

Nemendur kynnast helstu þáttum þroskasálfræðinnar og þroskaferlum einstaklinga frá getnaði og fram á unglingsár. Fjallað er um líkamsþroska vitsmuna-, siðfræði- og tilfinningaþroska. Einnig er vikið að þroskahömlum og þær skoðaðar út frá líffræðilegu og sálfræðilegu sjónarhorni. Fjallað er um mismunandi þroskakenningar. Mótunaráhrif fjölskyldu og vina eru skoðuð og komið inn á vandamál barna og unglinga til dæmis geðræn-, tilfinningaleg-, líkamleg-, náms- og hegðunarvandamál.

Forkröfur

SÁLF2IN05 eða áfangi á öðru þrepi í félagsgreinum

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • þroska mannsins út frá sálfræðilegum kenningum
  • þróun máltöku
  • helstu hugtökum og kenningum þroskasálfræðinnar
  • framlagi þroskasálfræðinnar innan sálfræðinnar og til samfélagsins
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • miðla sérhæfðri færni með því að beita almennum og sértækum

     vinnubrögðum, verkfærum og aðferðum

  • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
  • nýta fræðilegan texta á íslensku
  • miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vera betur í stakk búinn til að takast á við uppeldi eigin barna
  • tileinka sér frekara nám/starf á sviði uppeldismála
  • vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
  • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
  • taka þátt í rökræðum um málefni sem tengjast þroskasálfræði
Námsmat Símat: Fimm kaflapróf