RAUN2LÍ05

Titill

Líffræði almennt yfirlit

Námsgrein Raunvísindi - Líffræði
Viðfangsefni  
Skammstöfun RAUN2LÍ05
Staða  
Þrep 1
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Viðfangsefni áfangans er kynning á einkennum líffræði sem vísindagreinar og tengsl hennar við aðrar greinar. Fjallað er um hugmyndir um uppruna lífs á jörðu, lífræn byggingarefni og efnaskipti lífvera, byggingu og starfsemi frumunnar, lífheiminn og flokkun lífvera með áherslu á plöntur og dýr, svo og um grunnatriði erfðafræði og vistfræði.  
Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • grundvallarhugtökum, sérkennum og aðferðafræði líffræðinnar
  • vægi greinarinnar í innlendu og alþjóðlegu samhengi
  • efni líkamans, byggingu og starfsemi frumna
  • grunnstarfsemi lífvera
  • flokkun lífvera í ríki og fylkingar
  • helstu kenningum um erfðir og þróun
  • grundvallaratriðum vistfræði og tengslum hennar við sjálfbærni
Leikniviðmið Nemandi öðlist leikni í að:
  • beita grunnhugtökum fræðigreinarinnar á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi
  • tjá sig um líffræðileg málefni samfélagsins á skýran og ábyrgan hátt
  • lesa einfaldar líf- og efnafræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
  • skoða og greina algengustu lífverur í náttúru Íslands
  • leitast við að lifa með sjálfbærni að leiðarljósi
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • leggja gróft mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt
  • taka ábyrga afstöðu um eigin velferð og áhrif sín á umhverfið með tilliti til einfaldra líffræðilegra þátta
  • afla sér frekari þekkingar á líffræðilegum viðfangsefnum daglegs lífs
Námsmat Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd Áfangalýsingar hjá Menntaskólanum á Egilsstöðum.