NÆRI2AA05

Titill Næringarfræði
Námsgrein Næringarfræði
Viðfangsefni Næringarfræði manna
Skammstöfun NÆRI2AA5
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Næringarfræði mannsins, næringarefni fæðunnar og samspil hennar við mannslíkamann á hinum ýmsu æviskeiðum. Sérstakar næringarþarfir, eiturefni í matvælum og matvælasjúkdómar.
Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • næringarefnum fæðunnar og samspili þeirra við mannslíkamann.
  • mikilvægi hreyfingar fyrir heilbrigði
  • meltingu og mikilvægi örveruflórunnar í því samhengi
  • mikilvægi vatns
  • merkingum matvæla
  • áhrifum matreiðslu- og geymsluaðferða á næringargildi fæðu
  • næringarþörf á mismunandi æviskeiðum
  • næringarþörfum sérstakra hópa
  • eiturefnum í matvælum
  • fæðuofnæmi og fæðuóþoli
  • fæðutengdum sjúkdómum
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa næringarfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
  • meta hollustu fæðu sinnar
  • reikna orku- og næringarefnainnihald fæðunnar
  • setja saman hollan matseðil fyrir mismunandi hópa
  • beita hugtökum næringarfræðinnar
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • auka skilning sinn á næringarfræðilegum viðfangsefnum
  • geta tekið rökstudda afstöðu til  næringarfræðilegra álitamála
  • tengja undirstöðuþekkingu í næringarfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
  • taka ábyrgð á eigin lífi með tilliti til næringarþarfa og heilbrigðis
  • afla sér frekari þekkingar á sviði næringarfræðinnar
Námsmat Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd NÆR 103