LOKH3HB05

LOKH3HB05 – Lokaverkefni á hestabraut

 

Lýsing: Í áfanganum vinna nemendur lokaverkefni sem byggir á fræðilegri þekkingu. Áfanginn gefur möguleika á þverfaglegu samstarfi, þó er gert ráð fyrir að nemandinn velji efni tengt hestabraut. Nemandinn fær kennslu í helstu aðferðum rannsókna og þjálfun í þeim fræðilegu vinnubrögðum sem tíðkast við vinnslu og frágang verkefna. Krafist er vitsmunalegrar og verklegrar leikni til að vinna verkefnið og ætlast er til að nemandinn öðlist hæfni til að nýta fyrri þekkingu og skilning við úrvinnslu. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð, að nemandinn læri að setja fram skoðanir sínar á faglegan hátt og taki ábyrgð á eigin námi.

Forkröfur: HEST3ÞG03, REIM3ÞG05

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi undirbúnings-, tilrauna- og rannsóknarvinnu með öflun og úrvinnslu upplýsinga
  • forsendum hugmyndavinnu, framkvæmdar og framvindu að fullunnu verki
  • mikilvægi þess að koma vinnu sinni á framfæri og rýna í eigin verk og annarra
  • helstu reglum um heimildanotkun og þau kerfi sem eru notuð
  • helstu rannsóknaraðferðum
  • helstu aðferðum við framsetningu og úrvinnslu gagna í tölvu
  • helstu aðferðum við heimildaleit

 

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna vandaða hugmyndavinnu með öflun og úrvinnslu upplýsinga
  • skilgreina forsendur og þörf og endurmeta hugmyndir sínar
  • temja sér frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun
  • útfæra eigin hugmynd að verkefni tengdu sinni sérgrein.
  • temja sér sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
  • setja fram vinnuáætlun og greina verkþætti
  • að endurmeta framkvæmd verksins á öllu vinnuferlinu
  • temja sér öguð og vönduð vinnubrögð við frágang verkefna
  • kynna eigin verk og taka þátt í sýningu
  • rýna í eigin verk og annarra með uppbyggilegri gagnrýni

 

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta nýtt sér upplýsingatækni og aðra miðla við hugmyndavinnu
  • vera fær um að taka sjálfstæða ákvörðun varðandi verkefnaval
  • tileinka sér vinnuferlið frá hugmynd að fullgerðu verki
  • fylgja eftir skipulögðu vinnuferli miðað við tímaþátt, endurmat og framkvæmd verksins
  • sýna frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun.
  • koma vinnu sinni á framfæri í formi kynningar eða sýningar
  • rýna í eigin verk og rökstyðja niðurstöður bæði munnlega og skriflega á uppbyggilegan hátt

Námsmat: Leiðsagnarmat.

 

Útgáfunúmer:

 

Skólar:

 

Leiðbeiningar:

 

Fyrirmynd: