LIST1LK05

Titill Listgreinar - kynning
Námsgrein Listir
Viðfangsefni Kynning á öllum listgreinum sem kenndar eru í skólanum
Skammstöfun LIST1LK05
Staða  
Þrep 1. þrep
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í áfanganum eru kynntar allar listgreinar sem kenndar eru við skólann: Tónlist, textílmennt, myndlist, kvikmyndasaga, leiklist og menningarsaga. Nemandanum gert auðveldara að velja sér svið/fög sem höfða til hans í áframhaldandi listnámi og gera þannig námið markvissara.
Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • fjölbreytileika listgreina og listnáms
  • möguleikum mismunandi listgreina
  • mismunandi efnum og áhöldum í listrænni tjáningu
  • mismunandi uppbyggingu og aðferðum hinna ýmsu listgreina
  • hvernig frjó og skapandi hugsun nýtist í öllum þáttum mannlífsins.
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna með mismunandi verkfæri listgreina
  • beita aðferðum mismunandi tjáningarforma
  • tjá sig í mismunandi listformum
  • átta sig á mismunandi túlkunarmöguleikum
  • taka þátt í samræðum og færa rök fyrir skoðunum sínum
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • velja sér svið/fög sem höfða til hans í áframhaldandi listnámi
  • til að skapa, þekkja eða kunna skil á verkum í mismunandi listformum
  • sjá möguleika á að tjá hugmyndir sínar, skoðanir og tilfinningar í farvegi mismunandi listgreina.
  • setja listir í menningarlegt og sögulegt samhengi
Námsmat Áfanginn er símatsáfangi þar sem hvert viðfangsefni fær sinn ákveðna tíma. Ekkert lokapróf.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd