LÍOL2IL05
Titill |
LÍOL2IL05 |
Námsgrein | Líffæra og lífeðlisfræði B |
Viðfangsefni | |
Skammstöfun | LÍOL2IL05 |
Þrep | 2.þrep |
Einingafjöldi | 5 |
Lýsing |
Markmið áfangans er að nemendur öðlist þá grundvallarþekkingu og skilning á byggingu og starfsemi mannslíkamans, sem er nauðsynleg fyrir frekara nám og störf á heilbrigðissviði. Farið er í byggingu og starfsemi hringrásarkerfis: blóð, hjarta, blóðæðar, blóðþrýstingur og stjórnun hans; vessakerfis: vessalíffæri, varnir, ónæmi; öndunarkerfis: öndunarvegur, lungu, öndunarhreyfingar, loftskipti, stjórnun öndunar; meltingarkerfis: aðal- og aukalíffæri meltingar, melting og stjórnun hennar; þvagkerfis: nýru, þvagblaðra, þvagpípur, þvagrás, þvagmyndun; æxlunarkerfis: innri og ytri kynfæri, myndun kynfrumna, kynhormón, tíðahringur. Auk þess er farið í grundvallaratriði fósturþroska. Fjallað er um hvernig starfsemi allra líffærakerfanna tengist innbyrðis og hvernig hún viðheldur innri stöðugleika líkamans. Öll líffærafræðileg umfjöllun gengur út frá latneskri nafngiftafræði. |
Forkröfur | LÍOL2SS05 |
Þekkingarviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: ytri og innri gerð líff æra þeirra líffærakerfa sem fjallað er um og latnesk heiti þar að lútandi. Starfsemi þeirra líffærakerfa sem farið er yfir hvernig starfsemi líffærakerfanna tengist innbyrðis og viðheldur innri stöðugleika líkamans. |
Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: nota latnesk heiti við að lýsa afstöðu líffæra og líffærahluta tengja byggingu líffæra- og líffærahluta við starfsemi þeirra tengja í heild starfsemi líffærakerfanna rekja og útskýra flókin lífeðlisfræðileg ferli dýpka þekkingu sína í faginu með fjölbreyttri heimildavinnu
|
Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: nýta þekkingu sína og leikni í líffæra- og lífeðlisfræði í öðrum námsgreinum og starfi
taka þátt í faglegri umræðu er varðar líffæra- og lífeðlisfræði meta trúverðugleika töfralausna um bætta heilsu
|
Námsmat | Hlutapróf, verkefni og lokapróf |