LIME1IN05

Titill LISTIR OG MENNING: Inngangur – Sjálfsnám - Leiklistarsaga
Námsgrein Listir og menning
Viðfangsefni

Kynning á ýmsum þáttum menningar og listar með áherslu á leiklistarsögu og nemendastýrt sjálfsnám í lista og menningarsögu

Skammstöfun LIME1IN05
Þrep 1
Einingafjöldi 5
Lýsing

Í áfanganum eru nokkur helstu hugtök í listum og menningu kynnt með megináherslu á leiklistarsögu.

Um það bil helmingur áfangans er á ábyrgð nemenda þar sem þeir velja sér viðfangsefni innan lista og menningar og velja sér þær aðferðir sem þeir kjósa til að koma efninu á framfæri til annarra nemenda áfangans.

Einnig er fjallað um mikilvægar persónur leiklistarsögunnar, m.a. Æskýlos, Aristóteles, Shakespeare, Ibsen, Strindberg, Sarah Bernhardt, Elenora Duse, Ellen Terry, Gordon Craig, Maurice Maeterlinck, Oscar Wilde, George Bernard Shaw, Anton Chekhov, Stanislavski, Edmund Rostand, Gilbert og Sullivan, Artaud, Coleridge, Brecht, Laurence Olivier, Samuel Beckett.

Farið er í menningarferð til Reykjavíkur og þar á meðal í leikhús.

Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á eftirfarandi hugtökum og þáttum:

  • Commedia dellʼarte, helstu persónum kommedíunnar og flokkun

þeirra og einkennum

  • látbragðsleik (míma) á mismunandi tímum mannkynssögunnar
  • ýmsum leikhópum og einstaklingum
  • grímu, mímu og Mummenschanz
  • götumímu
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tileinka sér þekkingu á listum og menningu með sjálfstæðum vinnubrögðum
  • tjá sig um sögu leiklistar á hinum ýmsu tímum og formum
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt sér þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • halda áfram námi á leiklistarsviði og í listum almennt
  • vinna á sjálfstæðan hátt í sjálfsnámi
Námsmat

Námsmat byggir á símati, en gert er ráð fyrir prófum í leiklistarsögu, stóru hópverkefni í listum og menningu og smærri verkefnum sem eru unnin annað hvort einstaklingslega eða í pörum.