LÍFE2LN05
Titill |
Lífeðlisfræði |
Námsgrein | Líffræði |
Viðfangsefni | Lífeðlisfræði |
Skammstöfun | LÍFE2LN05 |
Staða | |
Þrep | 2 |
Einingafjöldi | 5 |
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | |
Lýsing | Fjallað verður um líkamsstarfsemi dýra. Nemandi kynnist hvernig frumur, vefir og líffæri starfa saman og hvernig starfsemi helstu líffæra og líffærakerfa í dýrum er háttað. Áherslan verður á hryggdýr og líffærakerfi þeirra og þá sérstaklega spendýr og heilbrigðra líkamsstarfsemi hjá þeim. |
Forkröfur | LÍFF2EL05 |
Þekkingarviðmið |
Nemandi þekki sameiginleg einkenni lífvera í dýraríkinu og einkenni helstu dýrafylkinga. Nemandi skilji eðli taugaboða og starfsemi taugakerfis, eðli hormóna og starfsemi innkirtlakerfis, samhæfingu og stjórnun líffærakerfa. Hvernig hjarta- og æðakerfi starfi og mismunandi hlutverkum blóðs. Þekki varnarkerfi mannslíkamans og hvernig úrgangslosunar- og öndunarkerfi starfa. Kunni skila á uppbyggingu og virkni meltingarkerfis, stoðkerfum og eðli hreyfingar, mismunandi skynfærum, ásamt æxlunarkerfi og fósturþroska. Öðlist þekkingu til undirbúnings frekari náms í líffræðigreinum. |
Leikniviðmið | Nemandi skal hafa öðlast leikni í að beita grunnhugtökum lífeðlisfræðinnar á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi. Lesa lífeðlisfræðilegar upplýsingar í máli og myndum, meta áhrif lífshátta á heilbrigða þroskun og starfsemi líkamans. Geta beitt einföldum lífeðlisfræðilegum rannsóknaraðferðum og einföldum líffræðilegum aðferðum í verklegum æfingum og vinna skýrslur úr þeim. Nemendur geti aflað sér áreiðanlegra heimilda frá ýmsum mismunandi miðlum. |
Hæfniviðmið | Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að leggja mat á einfaldar lífeðlisfræðilegar upplýsingar daglegs lífs á gagnrýninn hátt. Hann geti tjáð sig um lífeðlisfræðileg málefni daglegs lífs á skýran og ábyrgan hátt, tekið ábyrgð á eigin lífi m.t.t. lífeðlisfræðilegra þátta. Nemandi geti tekið þátt í einföldum lífeðlisfræðilegum athugunum, tengja niðurstöðurnar við fræðin og draga ályktanir af þeim. Býr yfir hæfni til að fara í frekara nám á sviði líffræðinnar. |
Námsmat | Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá. |
Útgáfunúmer | |
Skólar | |
Fyrirmynd | Áfangalýsingar hjá Menntaskólanum á Egilsstöðum, http://www.me.is |