LEIH2HE05

LEIH2HE05 - Leiðbeinandi í hestamennsku:


Lýsing: Í áfanganum er farið í grunnatriði hestatengdar ferðaþjónustu. Nemandinn fær kennslu og æfingu í störfum greinarinnar og lærir að aðstoða fagfólk við að leiðbeina byrjendum (börnum og fullorðnum) í hestamennsku. Farið er í öryggismál, samskipti við viðskiptavini og almennar vinnureglur á hestaleigum og reiðskólum.  Kennd er skyndihjálp í hestamennsku. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.

 

Forkröfur: HEST3ÞG03, REIM3ÞG05

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Almennum öryggismálum á hestaleigum og reiðskólum
  • Skyndihjálp í hestamennsku
  • Hvernig aðstoða á fagfólk við reiðkennslu og eða stjórn hópa í hestaleigum.

 

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Aðstoða fagfólk við reiðkennslu og eða stjórn hópa í hestaleigum.

 

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Geta aðstoðað í hestatengdu ferðaþjónustu fyrirtæki.
  • Getað aðstoðað reiðkennara við kennslu byrjenda í hestamennsku.
  • Getað notað skyndihjálp.

Námsmat: Áfanginn er lokaprófslaus og er símatsáfangi. Símatið byggir á ástundun og verkefnavinnu.

 

Útgáfunúmer:

 

Skólar:

 

Leiðbeiningar:

 

Fyrirmynd: