JARÐ2JÍ05

Titill

Jarðfræði Íslands

Námsgrein jarðfræði
Viðfangsefni Jarðfræði Íslands
Skammstöfun JARÐ2JÍ05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Í þessum áfanga kynnast nemendur mótun innri og ytri afla á landið. Fjallað verður fræðilega um þau ferli sem móta jörðina og fræðin tengd við þau ummerki sem nemendur sjá í umhverfinu. Þeir læra að þekkja ummerkin og vinna verkefni tengd þeim. Einnig kynnast nemendur ýmsum aðferðum jarðkönnunar og mælitækjum tengdum þeim. Þá er fjallað um hagnýtingu jarðefna, jarðvarma og vatnsafls. Helstu efnisþættir áfangans eru: •innræn og útræn öfl •innri gerð jarðar og landrek •myndun og þróun Íslands og samhengi við umhverfið •eldvirkni og jarðskjálftar, tengdar jarðmyndanir •        veðrun og rof og tengdar jarðmyndanir •steindir og bergtegundir, eiginleikar, myndun og flokkun •kort og kortagerð •jarðefni •jarðvarmi og vatnsorka

Forkröfur engar
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

innri gerð jarðar og þeim leiðum sem notaðar eru við könnun hennar

mismunandi eldvirkni og þeim þáttum sem hafa áhrif á hana

landreki, drifkrafti þess og afleiðingum, s.s. eldvirkni og jarðskjálftum

myndun steinda og bergs og ásýnd og eiginleikum helstu steinda og bergtegunda

helstu roföflum, ferlum þeirra og ummerkjum

myndun og þróun Íslands

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

beita hugtökum og kenningum á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi

beita staðsetningarkerfi jarðarinnar á kortum og/eða með GPS-tækni

greina ummerki jarðfræðilegra ferla og skilgreina út frá mótunarferli þeirra

lesa af jarðfræðikortum, greina uppbyggingu jarðlagastafla og túlka jarðlög út frá þeim

staðsetja jarðfræðifyrirbæri á landinu og útskýra samhengi þeirra við jarðfræðiöflin

greina bergtegundir og steindir og útskýra myndunarferli þeirra

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

sýna sjálfstæð og öguð vinnubrögð í upplýsingaöflun, mati, úrvinnslu og framsetningu

lesa í umhverfi sitt, draga ályktanir, flokka, aðgreina og tengja fyrirbæri við jarðfræðilegt samhengi

átta sig á uppbyggingu jarðlagastafla og rekja myndunarsögu út frá afstöðu jarðlaga

fjalla um málefni jarðfræðinnar á rökrænan og upplýstan hátt

gera sér grein fyrir notagildi og mikilvægi jarðfræðinnar í daglegu lífi

Námsmat

Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd