ÍÞGR3BA03

 

Titill Íþróttagrein - Badminton
Námsgrein Íþróttagrein
Viðfangsefni Badminton
Skammstöfun ÍÞGR3BA03
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 3
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í badmintoni.  Lögð er áhersla á kennslu í grunntækni og leikfræði fyrir byrjendur. Farið er yfir reglur í greininni. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og æfingar kenndar sem þjálfa grunnatriðin í badmintoni. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Nemendur æfa sig að kenna hvort öðru badminton.
Forkröfur ÍÞRF2ÞJ03 eða ÍÞF102
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á:
  • Badmintoni
  • Helstu badmintonreglum
  • Ýmsum æfingum sem henta í þjálfun barna í badmintoni
  • Almennu gripi og bakhandargripi
  • Forhönd og bakhönd
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni til að:
  • kenna leikfræði badmintons
  • kenna smass, laumu, netspil háhögg og uppgjafir
  • sýna grunnfærni í badmintoni
Hæfniviðmið Að þessum áfanga loknum á nemandi að geta
  • kennt ýmis högg og slög í badmintoni
  • kennt börnum og byrjendum leikfræði badmintons
  • sýnt grunnfærni í badmintoni
Námsmat  
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd