ÍSLE2UT05

Titill

Uppistand og tjáning

Námsgrein Íslenska
Viðfangsefni Munnleg tjáning
Skammstöfun ÍSLE2UT05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Nemendur eru þjálfaðir í að semja efni til flutnings og koma því á framfæri. Áhersla er lögð á skapandi skrif, frumkvæði, skýra og blæbrigðaríka framsögn.
Forkröfur Lágmark 7 á grunnskólaprófi eða ÍSLE1DE05/ÍSEL1LR05
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:
  • helstu einkennum íslensks talmáls sem nýtast í ræðu og riti
  • muninum á góðum og slæmum rökum
  • helstu stílbrögðum
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • beita gagnrýninni hugsun
  • koma skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
  • nota stílbrögð á árangursríkan hátt
  • flytja af nokkru öryggi eigið efni; uppistand, ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknu efni
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • flytja eigið uppistand
  • ná athygli áheyrenda og halda henni
  • beita skýru og blæbrigðaríku máli
  • koma sjónarmiðum og hugmyndum á framfæri á áhrifaríkan hátt
Námsmat Símat/leiðsagnarmat
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd