HAGF3RE05

Titill Hagfræði
Námsgrein Rekstrarhagfræði
Viðfangsefni Rekstrarhagfræði
Skammstöfun HAGF3RE05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Fjallað er um grunneiningar þjóðarhagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og

fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og innbyrðis tengsl þeirra. Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi. Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni. Nemendur fá þjálfun í

að lesa úr línuritum og innsýn í notkun vísitalna, hlutfallareiknings, vegins meðaltals og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum. Áhersla er lögð á að nemendur geti hagnýtt sér Netið til öflunar hagfræðilegra upplýsinga.

Forkröfur HAGF2HA05
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

-Að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem

efnahagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki í samfélagsheildinni.                                                                                           –Helstu þætti er varðar innra skipulag og ytri aðstæður fyrirtækja

-Að nemendur geti flokkað atvinnugreinar, kynnast umhverfi og starfsgrundvelli fyrirtækja, stefnumótun og markmiðssetningu, kostnaðargreiningu og grunnþáttum bókhalds

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni til að:

-Taka þátt í efnahagsumræðu út frá faglegu sjónarmiði og með gagnrýnni hugsun

-þekkja þær aðferðir sem notaðar eru í innra skipulagi fyrirtækja og

framleiðslu

-þekkja til  hugtaka í fjárhagslegum rekstri fyrirtækja og þjálfist í

einfölum útreikningum

- ná að tengja hugmyndir rekstrarhagfræðinnar við raunverulegan rekstur og framleiðslu fyrirtækja

-þekkja það viðskiptaumhverfi sem fyrirtæki búa við á Íslandi í dag

-Hagnýta sér Internetið til öflunar þekkingar á hafgræðilegum upplýsingum á ábyrgan og gagnrýnin hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu sem hann hefur aflað sér til að:

-Gera sér grein fyrir grunnatriðum rekstrarhagfræðinnar

-Geta tjáð skoðanir sínar á skýrann og skilmerkilegan hátt

-Gera sér grein fyrir samspili hagfræðinnar í samfélaginu

Námsmat Námsmat er verkefnamiðað símat. Áhersla er lögð á að nemendur taki virkan þátt í verkefnum og umræðum.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd