FÖFM1FA04

FÖFM1FA04

Fag- og örverufræði matvælagreina

Einingar: 4

 

Hæfniþrep: 1

         

 

Lýsing:  Í áfanganum er fjallað um færniþætti matvælagreina í bóklegri kennslu. Nemendur kynnast straumum og stefnum í matvælagreinum og vinnsluaðferðum í hverri grein.  Þeir kynnast  siðum og venjum og þeim kröfum sem gerðar eru um rétt vinnubrögð í matvælagreinum.  Nemendur fá kennslu í því að fylgja leiðbeiningum, t.d. uppskriftum o.fl. er tengjast störfum í matvælagreinum, svo og faglegum vinnubrögðum.  Fjallað er um innra eftirlit,  HACCP. Þá fá nemendur fræðslu um mikilvægi þess að halda vinnusvæði og búnaði hreinum. Áhersla er lögð á mikilvægi hreinlætis til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma og ábyrgð matvælaframleiðenda í því samhengi.  Kynntar eru gildandi öryggisreglur um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Nemendur læra að gera hreinlætisáætlanir og eru þjálfaðir í að fylgja þeim eftir, ásamt því að kunna skil á helstu hreinsi- og sótthreinsiefnum.

Forkröfur:  Engar

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi starfa í matvælagreinum og þýðingu þeirra fyrir samfélagið
  • þeim færniþáttum sem viðhafðir eru við mismunandi störf í matvælagreinum
  • faglega réttum vinnubrögðum og mikilvægi þeirra við störf í matvæla- greinum
  • því að fylgja fyrirmælum, uppskriftum og fleiri leiðbeiningum á réttan hátt
  • að kunna það helsta sem máli skiptir varðandi persónulegt og almennt hreinlæti á vinnustað
  • skilji hreinsiáætlanir HACCP og geti fylgt slíkum áætlunum eftir
  • að kynnast eiginleikum helstu ræstiefna og þekki notkun þeirra
  • að öðlast skilning á mikilvægi hreinlætis og þrifnaðar í matvælaframleiðslu
  • ábyrgð starfsfólks í matvæla- og veitingagreinum sem og að koma í veg fyrir matarsjúkdóma

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • takast á við mismunandi störf í matvælagreinum og unnið við þau undir handleiðslu iðnmeistara eða tilsjónarmanns
  • fylgja viðurkenndum starfsaðferðum sem notaðar eru við störf í matvælagreinum og þeim hefðum sem farið er eftir
  • vinna skv. uppskriftum og leiðbeiningum frá viðkomandi yfirmanni/starfsmanni hverju sinni
  • vinna með hreinlætisáætlanir skv. gæðakerfi  HACCP
  • ganga af öryggi um vinnusvæði með tilliti til hreinlætiskrafna út frá öryggi viðskiptavinarins
  • forðast matarsýkingar við störf sín
         

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna í matvælagreinum eftir fyrirfram ákveðnum verkferlum á faglegan hátt
  • vinna  eftir uppskrift og  fylgja leiðbeiningum
  • viðhafa gott persónulegt hreinlæti
  • þrífa tæki, áhöld og umhverfi samkvæmt reglum um þrif í matvælafyrirtækjum
  • nota algengustu ræsti og sótthreinsiefni með tilliti til efnafræðilegrar uppbyggingar og umhverfisverndar
  • vinna samkvæmt hreinlætisáætlunum og útbúa þær
 

Námsmat:

Verkefni og próf

Leiðbeiningar og athugasemdir (fyrir aðra kennara)

Dags:  Febrúar 2014

Höfundar:  Baldur Sæmundsson, Guðríður Egilsdóttir og Marína Sigurgeirsdóttir