FÉLA3RV05

Námsgrein

FÉLAGSFRÆÐI

Viðfangsefni

Rannsókn í félagsvísindum

Skammstöfun

FÉLA3RV05

Staða

 

Þrep

3

Einingafjöldi

5

Tillaga að bókstöfum /tölustöfum skóla

 

Lýsing

Sjálfstætt rannsóknarverkefni í félagsvísindum.  Hugsað fyrir nemendur af Félagsgreinalínu eða Viðskipta- og hagfræðilínu.  Verkefnið er unnið alla önnina með lotuskilum og leiðsagnamati kennara.

Í áfanganum nýtir nemandi þá þekkingu og færni sem hann hefur tileinkað sér úr félagsfræðinámi sínu í skólanum í sjálfstæðu rannsóknarverkefni.
Nemendur velja sér rannsóknarefni í samráði við kennara.
Hægt er að vinna rannsóknarverkefnið sem einstaklings-, para- eða hópverkefni.
Nemandi hefur val um eigindlega eða megindlega rannsókn eða blöndu af þessum tveimur aðferðum.

Verkefni er skilað með rannsóknarskýrslu. Nemendum er ætlað að kynna rannsókn sína fyrir skólasamfélaginu með einhverjum þeim aðferðum sem henta,  myndbandi, vefsíðu, bæklingi eða öðru sem hentar verkefninu. Mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda þó kennari muni veita þeim leiðsögn.

 

Forkröfur

FÉLA3KA05 eða sambærilegur áfangi á 3 þrepi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Megindlegum og eigindlegum rannsóknum, kostum þeirra og göllum og tengsl þeirra við kenningar                      
  • Lykil hugtökum og aðferðum sem notast er við í rannsóknum félagsvísinda
  • Sérhæfðri rannsóknarvinnu félagsvísinda

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér leikni í að :

  • Hanna rannsókn sem hentar rannsóknarverkefni. 
  • Nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni
  • Safna upplýsingum á skipulegan hátt.
  • Vinna tölfræðigögn í tölfræðiforriti, SPSS eða sambærilegu
  • Vinna úr þeim gögnum upplýsingar til að miðla til annarra
  • Setja fram og túlka myndir og gröf   
  • Tjá skoðanir sínar og verkefni á skýran hátt, draga ályktanir og rökstyðja í fræðilegu samhengi

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Sýna frumkvæði, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Vinna vandaða rannsókn og skrifa rannsóknarskýrslu
  • Lesa fræðilegan texta um rannsóknir og geti lagt gagnrýnið mat á gæði rannsóknarinnar
  • Nýta sér þekkingu í meðferð heimilda
  • Beita mismunandi rannsóknaraðferðum og túlka niðurstöður
  • Útskýra, greina, draga ályktun af og miðla niðurstöðum rannsóknar
  • Taka þátt í og stjórna upplýstri umræðu um málefni er snerta samfélagsmál                 
  • Taka ábyrgð á eigin námi

 

Námsmat

Leiðsagnarmat.