ENSK3ÞC05

Áfangalýsing

Titill

Viðskiptaenska

Námsgrein

enska

Viðfangsefni

Viðskiptaenska

Skammstöfun

ENSK3ÞC05

Staða

 

Þrep

3

Einingafjöldi

5

Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla

 

Lýsing

Í lok áfangans skulu nemendur geta lesið sér til gagns og skilið  talað mál þar sem fjallað er um sérhæfð viðskiptamálefni.

Nemendur skulu einnig geta tjáð sig skilmerkilega í töluðu og rituðu máli um málefni tengd verslun og viðskiptum. Jafnframt munu nemendur hafa kynnst úrvinnslu fagorðaforða, vinna með texta og tileinka sér sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð. Nemendur stofna fyrirtæki og skila einstaklingsverkefnum.

 

Forkröfur

ENSK2OR05

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

 

  • Orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi.
  • Hefðum sem eiga við um talað og ritað mál t.d. mismunandi málsnið í formelgum bréfaskrifum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikini í:

  • Að skilja vel sérhæfða texta tengdan viðskiptum
  • Lestri, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbygginu eða myndmál og stílbrögð
  • Notkun tungumálsins á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
  • Að beita  ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur hefur þekkingu á.
  • Skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni, fræðilegs eða tæknilegs eðlis.
  • Geta lagt gagnrýnið mat á texta
  • Hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt.
  • Geta lýst skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem hann þekkir vel.
  • Vinna úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild samkvæmt þeim hefðum sem gilda um heimildavinnu

Skrifa gagnorðan og skilmerkilegan texta sem tekur mið af því hver lesandinn er.

 

Námsmat

Fjölbreytt námsmat

Útgáfunúmer

 

Skólar

 

Fyrirmynd