ENSK2YL05

Titill Yndislestur
Námsgrein Enska
Viðfangsefni Lestur
Skammstöfun ENSK2YL05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem hafa áhuga á lestri. Megináhersla er lögð á upplifun og skilning og að nemendur lesi sér til ánægju. Nemendur fá bókalista og velja sér fimm verk eftir enskumælandi höfunda. Þeir gera svo grein fyrir skáldsögunum munnlega í sérstökum viðtalstímum. Ekki er gert ráð fyrir föstum kennslustundum.

Forkröfur ENSK2HC05/ENSK2OL05
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • grundvallaruppbyggingu þjóðfélaga þar sem enska er notuð sem móðurmál
  • ólíkum viðhorfum og gildum í þeim löndum þar sem enska er notuð og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu
  • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins, þ.m.t. orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða
  • notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins munnlega
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa bókmenntaverk fyrir unglinga eða á sambærilegu stigi
  • tjá sig skýrt og hnökralaust um innihald skáldsagnanna
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
  • lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðarnir eru tjáð, átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og tjá skoðanir sínar  munnlega
  • lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu texta
  • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
  • eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum
  • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni
Námsmat Símat – munnleg próf.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd