ENSK2HC05

Titill

Hagnýt enska III

Námsgrein Enska
Viðfangsefni Hagnýt enska
Skammstöfun ENSK2HC05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í þessum áfanga verða unnin fjölbreytt verkefni sem leggja áherslu hina fjóra færniþætti tungumálanáms þ.e. lestur, ritun, hlustun og tjáningu.  Mest áhersla er lögð á orðaforða og ritun. Nemendur eru þjálfaðir í skipulegri framsetningu ritaðs máls, bæði uppbyggingu og orðaforða.
Forkröfur ENSK2HB05
Þekkingarviðmið

Þekking í lok annars þreps:

Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • þjóðfélögum þar sem tungumálið er notað sem

móðurmál eða fyrsta mál,

  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna þar sem tungumálið er notað og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu,
  • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins, þ.m.t. orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða,
  • notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins bæði munnlega og skriflega,
  • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, s.s greinamerkjasetningu.
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

 • að skilja mál sem talað er með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður

 • lestri margs konar gerða af textum og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er,

 • að taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi,

• að tjá sig skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið,

• að skrifa margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni og skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna
  • tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt,
  • lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt, átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og bregðast við eða tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra,
  • taka þátt í skoðanaskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður og tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
  • Skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í

hverju tilviki fyrir sig

Námsmat Fjölbreytt námsmat
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd