EFNA3BB05

 

Titill

Almenn efnafræði 2

Námsgrein Efnafræði
Viðfangsefni Efnahvörf, orka í efnahvörfum, gaslögmálið, hraði efnahvarfa, jafnvægi í efnahvörfum
Skammstöfun EFNA3BB05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Í áfanganum er áfram unnið með undirstöðuþætti efnafræðinnar. Til viðbótar er fjallað um gaslögmálið og tengingu þess við mól- og massaútreikninga í efnahvörfum auk þess sem farið verður í orkubreytingar við efnahvörf, hraða efnahvarfa og jafnvægishugtakið kynnt. Áhersla er lögð á aukið sjálfstæði í verklegum æfingum og vinnubrögðum almennt.
Forkröfur EFNA2AE5
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • ofgnótt, afgangi og nýtni í efnahvörfum
  • helstu efnagreiningaaðferðum
  • orkubreytingum við efnahvörf
  • gaslögmálinu og hagnýtingu þess í efnafræði og skyldum greinum
  • hraðahugtaki í efnafræði
  • helstu drifkröftum efnahvarfa
  • jafnvægishugtakinu
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • beita mól-, rúmmáls-, massa- og hlutfallareikningi í tengslum við efnahvörf
  • greina óþekkt efnismagn t.d. með títrun eða söfnun gass
  • beita einfaldri efnagreiningu
  • reikna út hvarfhraða og orkubreytingar við efnahvörf
  • setja upp og framkvæma verklegar æfingar og vinna markvisst úr niðurstöðum
  • meta áhrif breytinga á jafnvægisstöðu í efnahvörfum
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • leggja rökstutt mat á gang efnahvarfa og áhrif utanaðkomandi þátta t.d. á hvarfhraða og jafnvægisstöðu
  • vinna sjálfstætt að úrlausn efnafræðilegra viðfangsefna, bæði verklega og skriflega
  • koma niðurstöðum rannsókna á framfæri með skilmerkilegum hætti bæði í ræðu og riti
  • notfæra sér efnafræðina í öðrum raungreinum og hinu daglega lífi
Námsmat Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd EFN 203