EÐLI3RS05

 

Titill

Raf- og segulfræði

Námsgrein Eðlisfræði
Viðfangsefni Raf- og segulfræði
Skammstöfun EÐLI3RS05
Staða  
Þrep 3
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Í áfanganum eru tekin til athugunar grundvallaratriði rafmagns og segulsviðs og þau tengd umfjöllun um notkun rafmagns í tæknivæddu þjóðfélagi. Í verkefnavinnu áfangans er lögð áhersla á nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslu og notkun formúlna. Eins og í fyrri áföngum er lögð áhersla á að nemandinn geri tilraunir þar sem hann kynnist lögmálum eðlisfræðinnar af eigin raun og noti tölvur við mælingar og úrvinnslu, riti verkbók og kunni að skrifa skýrslu um tilraunir. Gert er ráð fyrir að a.m.k. 1/6 af kennslutíma nemenda sé nýttur til verklegra æfinga í smærri námshópum. Í áfangamarkmiðum eru tilgreind verkefni sem æskilegt er að nemendur vinni í tengslum við efni áfangans.

Forkröfur EÐLI2GR05
Þekkingarviðmið

Nemandi skal  hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • Rafhleðslu og rafsvið.
  • Rafspennu og rafstrauma.
  • Rafrásum í jafnstraumi.
  • Segulfræði og span.
  • Orðaforða á ensku tengdum efni áfangans.
  • sérhæfðum lögmálum, viðfangasefnum og orðfæri til að taka þátt í almennri umræðu um málefni eðlisfræði
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • Nota markverða tölustafi og viðeigandi einingar ásamt því að hagnýta og yfirfæra leikni milli flóknari stærðfræði og eðlisfræði til úrlausnar verkefna.
  • Setja fram og túlka myndir, gröf og töflur.
  • Tjá skoðanir sínar og verkefni á skýran hátt og rökstyðja í fræðilegu samhengi.
  • Leita sér heimilda um afmarkað efni/verkefni og nýta þær á viðeigandi hátt.
  • Skipuleggja og framkvæma verklegar æfingar og útskýra niðurstöður út frá verklýsingu/tilraunaseðli.
  • Að reikna verkefni í raf- og segulfræði.
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Bera ábyrgð á eigin námsframvindu.
  • Vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði.
Námsmat

Námsmat er byggt á fjölbreyttu mati: Verkefnavinna, krossapróf, skýrslur úr verklegum tilraunum og lokapróf.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd