BRAG1SB01

Titill Skólinn í okkar höndum
Námsgrein Skólabragur
Viðfangsefni Skólabragur
Skammstöfun BRAG1SB01
Staða  
Þrep 1
Einingafjöldi 1
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að efla sjálfsöryggi og sjálfstæði nemenda. Nemendur aðlagist vel nýju skólastigi og skólaumhverfi. Nemendur fá að kynnast þjónustu og úrræðum sem í boði eru – unnið er með hópefli, námstækni, forvarnir og heilsueflingu.

Forkröfur  
Þekkingarviðmið

Nemandi skal  hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • Fjölbreyttum námsleiðum og innihaldi nýrrar skólanámsskrár
  • Uppbyggingu námsferils
  • Dagamun og viðburðum innan skólans.
  • Markmiðssetningu í námi.
  • Námsvenjum og námstækni í samræmi við styrkleika.
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • Að ræða opinskátt um sjálfan sig sem námsmann.
  • Að geta tjáð sig í ræðu og riti um sín markmið.
  • Að setja sig í spor annara
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við nemendasamfélagið og nemendafélag.
  • Setja sér persónulega  námsstefnu.
  • Búa til námsferil
  • Beita námstækni sér til hagsbóta
  • Taka virkan þátt í orðræðu um lífsstíl, hreyfingu, næringu og geðrækt.
Námsmat

Fjölbreytt námsmat

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd