BÓKF1BA05
| Titill | Bókfærsla |
| Námsgrein | Bókfærsla |
| Viðfangsefni | Bókfærsla |
| Skammstöfun | BÓKF1BA05 |
| Staða | |
| Þrep | 1 |
| Einingafjöldi | 5 |
| Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla | BA |
| Lýsing | Í áfanganum er fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grunndvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. |
| Forkröfur | Engar |
| Þekkingarviðmið |
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar á: -Grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds -Helstu reglum tvíhliða bókhalds -Helstu reikningum sem teljast grunnreikningar í fjárhagsbókhaldi -Helstu lögum um bókhald og virðisaukaskatts |
| Leikniviðmið |
Nemandi skal hafa öðlast leikni til að: -Hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis -Færa einfaldar dagbókarfærslur -Stilla upp prófjöfnuði -Afrita viðskiptamannabók samkvæmt skuldunauta- og lánadrottnafærslum í dagbókinni -Færa niðurstöður dagbókar í aðalbók -Gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil -Gera lagfæringar á bókhaldinu með hliðsjón af einföldum athugasemdum, svo sem varðandi afskriftir, birgðatalningu, fyrirfram og ógreiddan kostnað og freira -Gera upp virðisaukaskatt og nota uppgjörsgögn -Setja upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna |
| Hæfniviðmið |
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu sem hann hefur aflað sér til að: -Geta notað grunnþekkingu sína til að auka hæfni sína í tvíhliða bókhaldi |
| Námsmat | |
| Útgáfunúmer | |
| Skólar | |
| Fyrirmynd | |







