Kvöldskóli í pípulögnum og rafvirkjun
Á haustönn 2026 verður boðið upp á nám í pípulögnum og rafvirkjun í FSu sem kennt verður á kvöldtíma ef næg þátttaka fæst.
Námið er aðallega hugsað fyrir þá einstaklinga sem hafa ekki komist að í dagskóla fram til þessa eða hafa áhuga en hafa ekki getað verið í námi á dagtíma.
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 20 ára eða eldri og er kostur ef viðkomandi hefur einhverja reynslu af vinnu í faginu.
Fyrirkomulag námsins verður, að kennt verður 4 daga í viku í u.þ.b. 2,5 klst. í senn, frá kl. 17:00-19:30 mán. – fim. (og 4 tíma á laugardagsmorgnum í rafvirkjun).
Nánara fyrirkomulag um kennsluna mun liggja fyrir þegar umsóknir fara að berast.
Kennt verður í verknámshúsi skólans.
Kennslan í kvöldskólanum verður eingöngu í fagtengdum áföngunum sem tilheyra brautunum.
Hér fylgja upplýsingar um námsbrautirnar, hvaða öðrum áföngum þarf að ljúka, auk upplýsinga um rafrænu ferilbókina:
Sótt er um hér: https://island.is/umsokn-um-framhaldsskola
Umsóknartímabilið verður frá 13. mars til 26. maí.
Innritunargjald verður 6.000 kr. og við það bætist einingagjald (2.500 kr. fyrir hverja einingu).
Til að hægt verði að fara af stað með námið þarf a.m.k. 12 nemendur í hverja námsgrein.
Verið velkomin í kvöldskóla FSu.







