YNGSTA TORFÆRUKONA ÍSLANDS

Telma Lind Árnadóttir sem er 17 ára gömul og stundar nám í vélvirkjun við FSu náði þeim tímamóta árangri í byrjun maí að vera yngsta konan til að taka þátt í torfærukeppni á Íslandi. Keppti hún á nýsmíðuðum bíl sem hún kallar TÚTTUNA og að sögn Borgþórs Helgasonar kennara hennar „smíðaði hún bílinn sjálf ásamt föður hennar upp úr gömlu FLUGUNNI.”

Þrátt fyrir ungan aldur „og að keppa án nítrós” eins og Borgþór orðar það - stóð Telma sig einstaklega vel. „Hún stimplaði sig strax inn í keppnina í fyrstu braut með svakalegu stökki sem kveikti mikla stemningu meðal áhorfenda. Í lendingunni brotnaði þó felga og skiptingin fékk högg sem olli því að hún átti í vandræðum með skiptinguna það sem eftir lifði keppninnar” bætir hann við.

Um sex þúsund áhorfendur fylgdust með þessari keppni og studdu allir Telmu. Stuðningurinn lét ekki á sér standa og tóku áhorfendur vel undir í hvert sinn sem hún fór í braut. Fylgjast má með ævintýrum Telmu í torfærunni á samfélagsmiðlum undir merkjum Team Túttan.

bh / jöz