VITLEYSA ER VIT

Í áfanganum ÍSLSE3YM05 er meðal annars fengist við MUNNMÆLI og þá hefð sem ritmálið sprettur af. Það er eitthvað sem við megum vera stolt af. Íslenskt ritmál verður til eftir 1120 þegar kaþólskir munkar rita á kálfskinn lög og máldaga og í kjölfarið varðveitast ljóð og sögur sem annars hefðu gleymst. Handritin sem við eigum eru ómetanleg verðmæti.

Nú til dags eru sagðar svipaðar sögur af alvöru og fíflagangi. Skáldið Jónas Árnason fullyrti að hugtakið VIT ætti sér hliðstæðu í hugtakinu VITLEYSA. William Shakespeare stillti oft upp trúði við hliðina á kóngi.

Að þessu sögðu fóru nemendur og kennari að sjá sýningu Borgarleikhússins á LADDA. Það voru sannkölluð munnmæli. Þar sáum við Hafnfirðinginn Þórhall Sigurðsson í setti og allar hans perónur og hlógum og grétum líka. Því öll vitleysa ber í sér vit. Handritin að verkum LADDA eru geymd í huga okkar.

jöz