Vísnakvöld hjá kór FSu

Kór Fsu heldur vísnakvöld í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands fimmtudaginn 12. mars klukkan 20:00. Ákveðið hefur verið að endurvekja þá skemmtilegu hefð kórsins frá árum áður að halda svokölluð vísnakvöld. Þar mun stíga á stokk kór Fjölbrautaskólans, en auk þess koma fram aðrir frábærir listamenn úr röðum nemenda sem og kennara skólans og  Tónsmiðju Suðurlands. Síðast en ekki síst mun hin magnaða Þjóðlagasveit Korka stíga á svið.

Þetta er skemmtun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Aðgangseyri er stillt í hóf eða 1000 kr. og rennur hann beint í ferðasjóð kórsins, en kórinn heldur í söngferðalag til Ítalíu þann 11. apríl næstkomandi. Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi.

Eins minnum við á vortónleika kórsins þann 28. mars í Selfosskirkju klukkan 14. Þar mun kórinn fá til sín góða gesti eins og hinn stórgóða Daníel Hauk  og hinn léttleikandi Karlakór Kjalnesinga.

Stjórnandi Fsu kórsins er Örlygur Atli Guðmundsson

Meðstjórnandi er  Gunnþórunn Klara Sveinsdóttir