VETRARLEIKAR FSu Í HESTAÍÞRÓTTUM

Sigurvegarar úr töltinu: Kristján Árni og Glámur.
Sigurvegarar úr töltinu: Kristján Árni og Glámur.

Vetrarleikar FSu er skemmtileg hefð sem er búin að eiga sér stað samhliða Kátum dögum allt frá árinu 2006. Þann 1. mars síðastliðinn voru þeir haldnir á félagsvæði Sleipnis. Góð þátttaka var á mótinu og voru það fyrsta árs nemendur sem stóðu að baki framkvæmd mótsins sem gekk afar vel, mikill metnaður er hjá nemendum að fræðast og læra meira. Því fengu þau styrki hjá reyndum og öflugum reiðkennurum í reiðkennslu.

Keppt var í tveimur greinum, tölti og mjólkurtölti. Þakkir til frábærra styrktaraðila sem gerðu það mögulegt að veita vegleg verðlaun í öllum greinum en að auki fengu allir keppendur glaðninga.

Í tölti voru sautján keppendur skráðir til leiks og komust átta efstu knaparnir áfram og kepptu til úrslita. Í mjólkurtölti voru ellefu keppendur skráðir til leiks og hlutu þrír efstu knaparnir verðlaun. Dómari mótsins að þessu sinni var Ragnar Stefánsson við þökkum honum kærlega fyrir.

ÚRSLIT

TÖLT

  1. Kristján Árni og Glámur frá Hafnarfirði
  2. Unnsteinn Reynisson og Fúga frá Breiðholti í Flóa
  3. Jónína Daníelsdóttir og Agla frá Dalbæ
  4. Lilja Dögg og Nökkvi frá Litlu-Sandvík
  5. Jessica Ósk og Gjöf frá Brenniborg
  6. Sunna og Slyngur frá Sperðli
  7. Margrét og Lyfting frá Höfðabakka
  8. María Björk og Sunna frá Stóra-Rimakoti

 

MJÓLKURTÖLT

  1. Jessica Ósk og Fold frá Hallgilsstöðum
  2. Lilja Dögg og Hviða frá Eldborg
  3. Sunna og Náttfari frá Vestri-Geldingaholti
  4. Margrét og Lyfting frá Höfðabakka
  5. Sigurbjörg og Vaka frá Leirubakka
  6. Keira Líf og Mánadís frá Ingólfshvoli
  7. María Björk og Sunna frá Stóra-Rimakoti
  8. Ólafur og Gjöf frá Brenniborg

Reiðmennskuverðlaunin hlaut Kristján Árni á hestinum Glámi frá Hafnarfirði en verðlaunin voru gefin af Baldvin og Þorvaldi. Verðlaunin fyrir efnilegasta parið hlaut Jónína á Öglu frá Dalbæ en verðlaunin voru gefin af Hreinum takti. Einnig hlutu verðlaun parið með besta tímann óháð refstistigum en það var Jessica Ósk og Fold frá Hallgillstöðum. Gefandi þeirra verðlauna var Efnalaug Suðurlands. Verðlaunapeningarnir komu frá Karli úrsmiði og voru greiddir af Nemendafélagi FSu. Við þökkum þeim fyrir stuðninginn. Vinningar voru fjölmargir og er eftirtöldum styrktaraðilum þakkað kærlega fyrir stuðninginn: Almar Bakari, Baldvin og Þorvaldur, MS, Stúdio Sport, Ópus Studio, Skalli, Efnalaugin, Dominos, Húsasmiðjan/Blómaval, Fóðurblandan, Lífland, Dýrasjúkraþjálfun hjá Söndru, Hreinn taktur, Járn og hófar, Hestvit, Kjarr, Mjósyndi, Sigvaldi Lárus Guðmundsson, Pula, Þórdís Erla Gunnarsdóttir, Fríða Hansen, Svanhildur Guðbrandsdóttir, Vesturkot, Hófadynur og Nemendafélag FSu.

sei / jöz